Við fyrstu sýn virðist Reykjanesskaginn hrjóstugur á að líta, en ef betur er að gáð kemur í ljós margbreytilegt gróðurfar. Fyrst ber að nefna mosann sem klæðir hraunin á stórum svæðum. Við öflun eldsneytis hér áður fyrr voru allir möguleikar gjörnýttir. Var safnað mosa, þangi, þönglum og þara til eldsneytis? Einnig sprekum, mor og smáreka. Kalviður og skógviður í skógi var notaður til eldsneytis ef um það var að ræða. Grámosinn var rifinn upp í hraununum og einkum notaður til eldiviðardrýginda? Stundum er sagt að mosaplöntur séu „frumstæðar“ vegna þess að mosar uxu á jörðinni langt á undan blómplöntunum. Mosar mynda ekki blóm eða fræ en þeir fjölga sér og dreifa með örsmáum gróum. Mosar hafa ekki rætur.