Þegar unnið var að undirbúningi Suðurstrandarvegar var framkvæmd fornleifaskráning á og við fyrirhugað vegstæði. Þetta var árið 1998. Árið 2000 var hlutaðeigandi skrásetjari sendur til baka um svæðið og gert að framkvæma aðra fornleifaskráningu. Við það bættust ótal minjar, sem ekki virtust hafa verið til áður. Gerð var fyrirspurn um nokkrar fornminjar til viðbótar og kom þá í ljós að þær höfðu missést í yfirferðinni. Enn var spurt um tilteknar fornminjar, t.a.m. gamla vagnveginn yfir Siglubergsháls, en hans var ekki getið í hinum nýjustu skrám. Hann sást reyndar mjög greinilega á þremur stöðum í Siglubergshálsi, en fallegasti hluti vegarins var skammt ofan við Skökugil. Loks, svona til að friða órólega, var kveðið úr um að þeir þyftu ekki að hafa áhyggjur af þeim kafla vegarins - "hann væri utan við fyrirhugað vegstæði Suðurstrandarvegar". En hver varð raunin?