Eftirfarandi ábending barst FERLIR um hugsanlegan helli undir hluta álversins í Straumsvík: "Hef verið að reyna að grafast fyrir um hellinn sem er undir Ísal í Hafnarfirði. Það voru upphaflega þrjú stór síló (þessi rauðu og hvítu) en eitt var fjarlægt. Það síló var ekki notað nema að hluta til því að þegar þeir voru að setja það upp kom í ljós að það er líklega stór hellir undir. Það var sett mikið magn af steypu og sandi inn en virkaði ekki neitt. Steypan sást, sögðu þeir sem unnu við það, fljótandi fyrir utan höfnina. Það var ekki gerð nein hola niður en borarnir og gatið var rétt nóg fyrir steypuna til að renna niður. Gatið sem var gert er á milli mötuneytisins og Kerfóðrunar." FERLIR kannaði málið með því að leita til aðila er hugsanlega gætu gefið nánari upplýsingar um framangreint.