Kristján Eldjárn ritaði tólf minjaþætti í "Stakir steinar" (1956). Í einum þáttanna er lýst staðsetningu á kumlum þeim sem fundust við Hafurbjarnarstaði á Rosmhvalanesi og hafa að hluta verið til sýnis undir gleri í gólfi II. hæðar á meginsýningu Þjóðminjasafnsins. Í bók sinni "Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Íslandi" segir Kristján einnig frá fundinum. Kumlteigurinn sést enn norðan við Hafurbjarnarstaði. En lítið virðist hafa verið gert af því að leita bænahúss eða kirkju í nálægð við hann. Forvitnilegar tóftir, jarðlægar, má greina sunnan og suðaustan við hann. Einnig fornt garðlag skammt norðar og suðvestar. Áhugavert væri að skoða þessar minjar með hliðsjón af kumlteigunum fyrrum, en fjöldi þeirra benda til að ekki hafi verið um einstaka gröf eða grafir að ræða, heldur skipulegt grafsvæði - og þá væntanlega með tilheyrandi mannvirkjum.