Stefnan var tekin á Torfdal ofan við bæinn Helgadal í Mosfelssveit (Mosfellsdal). Dalurinn er fremur stuttur. Um hann rennur Torfdalslækur, vatnslítill nema í leysingum. Neðarlega myndar hann fossagil. Ætlunin var að staðsetja Selhól, sem getið er í örnefnalýsingu svog mögulegar selminjar af draganda nafngiftar hólsins. Að sögn bóndans í Helgadag, eftir að hafa ráðfært sig við húsfreyjuna, er hafði sótt örnefnalýsingu jarðarinnar sér til halds og trausts, mun Selhóll skaga út úr norðvesturhorni Grímarsfells, "augljós er upp væri komið". Að sögn lægju "gamlar götur upp frá bænum áleiðis að Selhól, sem þó virtist ekki greinanlegt í dag".