Haldið var upp með hlíðum Bæjarfells utan við Þormóðsdal með stefnu á Borgarvatn suðaustan í Reykjaborg. Svæðið tilheyrir Þormóðsdal og Suður-Reykjum. Lækur rennur úr Borgarvatni í Varmá. Þaðan var gengið með Þverfelli að Bjarnarvatni. Varmá rennur úr vatninu um Húsadal. Vatnið er stórt, en fremur grunnt. Norðan við vatnið er Torfdalur. Ofan hans er Forarmýri. Í henni eru minjar áveitumannvirkja sem og dularfullar tóftir á melhól. Ætlunin var að skoða hvorutveggja. Norðar er Torfdalur og Helgadalsland. Svæðið, þótt í nágrenni nánasta þéttbýlis sé, er afskaplega afskekkt göngulega séð. Þó hafa Mosfellingar lagt talsvert á sig að laða göngufólk að því, s.s. með uppsetningu gönguskilta.